- Elkem
- About Elkem
- Our Worldwide Presence
- Iceland
- Elkem Iceland
- Fréttir
- Framúrskarandi fyrirtæki
Framúrskarandi fyrirtæki
Elkem Ísland er í hópi framúrskarandi fyrirtækja á Íslandi árið 2016
Af tæplega 35.000 skráðum fyrirtækjum á Íslandi uppfylla 624 skilyrði Creditinfo um styrk og stöðugleika.
Til þess að eiga kost á viðurkenningunni þurfa fyrirtækin að uppfylla strangt gæðamat byggt á faglegum kröfum og greiningu Creditinfo.
Skilyrðin eru:
- Hefur skilað ársreikningi til RSK síðastliðin þrjú ár
- Er í lánshæfisflokki 1-3
- Rekstrarhagnaður (EBIT) hefur verið jákvæður þrjú ár í röð
- Ársniðurstaða hefur verið jákvæð þrjú ár í röð
- Eiginfjárhlutfall 20% eða meira þrjú rekstrarár í röð
- Eignir hafa numið 80 milljónum eða meira þrjú ár í röð
- Framkvæmdastjóri er skráður í hlutafélagaskrá
- Fyrirtækið er virkt skv. skilgreiningu Creditinfo
Elkem Ísland ehf. er á meðal 1,7% íslenskra fyrirtækja sem standast þær kröfur. Núna þriðja árið í röð.