Skip to main content

Umhverfismál

Iðnaður í þágu umhverfisins

Elkem Ísland leggur metnað sinn í að starfa í sem mestri sátt við umhverfið og samfélagið.

Nýjasta umhverfisskýrsla Elkem Ísland

Umhverfisþættir eru þeir þættir í starfsemi Elkem á Íslandi sem geta haft áhrif á umhverfið, svo sem urðun aukaafurða og losun efna í andrúmsloft.

Í yfir hundrað ár hefur Elkem samsteypan verið frumkvöðull í tækniþróun í kísiliðnaði og haft frumkvæði að þróun lausna á sviði umhverfismála. Elkem Ísland hefur sett það markmið að starfsemin verði með öllu kolefnishlutlaus eigi síðar en árið 2040 sem þýðir jafnframt að Elkem Ísland verður fyrsta kolefnishlutlausa kísilmálmsverksmiðjan í Evrópu. 

Umfangsmikil umhverfisvöktun fer fram í grennd við iðnaðarsvæðið á Grundartanga. 

Gerðar eru reglubundnar mælingar á helstu umhverfisþáttum starfsemarinnar í samræmi við starfsleyfi Elkem Ísland. Umhverfisskýrslur Elkem Ísland má skoða hér:

 

Árlega er gefin út samantektarskýrsla vöktun umhverfisþátta fyrir iðnaðarsvæðið á Grundartanga. Umhverfisvöktunaráætlunin er samþykkt af Umhverfisstofnun og allar rannsóknir framkvæmdar að óháðum aðilum.

Stutt samantekt um helstu niðurstöður umhverfisvöktunar

Frá árinu 1990 hefur Náttúrufræðistofnun Íslands vaktað losun þungmálma í mosa á Íslandi til samanburðar við önnur Evrópulönd.

Aðrar upplýsingar um kröfur í starfsleyfi Elkem Ísland sem og umhverfisvöktun má finna á heimasíðu Umhverfisstofnunar:

Vottanir Elkem Ísland

Gæðastjórnunarstaðall
Gildir til: 14. október 2025

Umhverfisstjórnunarstaðall
Gildir til: 14. október 2025

Contact us

Take your business to the next level by partnering with a world-leading material manufacturer.